Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 335. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 604 — 335. mál.
um breytingu á lögum um skráningu og mat fasteigna, nr. 6/2001.
Allar fasteignir skulu bera fast auðkenni, fasteignanúmer, sem Fasteignamat ríkisins úthlutar við forskráningu. Númerið er hlaupandi raðtala og felur ekki í sér aðrar upplýsingar. Undir fasteignanúmer fellur:
1. Landnúmer, sem er auðkenni landskika.
2. Heitinúmer, sem er auðkenni fasteignaheita.
3. Fastanúmer, sem er auðkenni eignarhluta í mannvirki eða mannvirkja í heild sinni, ásamt lóðarréttindum.
Auk fasteignanúmers ber hver fasteign heiti samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar eða samkvæmt lögum um bæjanöfn o.fl.
Ráðherra er heimilt að setja nánari reglur um heiti fasteigna, annarra en þeirra sem falla undir lög um bæjanöfn o.fl.
Nýtt matsverð skal þegar skrá í Landskrá fasteigna og gildir það með þeim almennu breytingum sem á því geta orðið eða þar til því er hrundið með nýju mati.
Til þess að standa straum af kostnaði Fasteignamats ríkisins við að halda og þróa Landskrá fasteigna skulu húseigendur greiða til þess sérstakt umsýslugjald á árunum 2005 og 2006. Skal gjald þetta nema 0,1 (prómilli) af brunabótamati hverrar húseignar. Skal vátryggingafélag innheimta gjaldið samhliða innheimtu brunatryggingariðgjalda og skila umsýslugjaldi til Fasteignamats ríkisins eigi síðar en 45 dögum eftir gjalddaga.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 604 — 335. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um skráningu og mat fasteigna, nr. 6/2001.
(Eftir 2. umr., 8. des.)
1. gr.
Allar fasteignir skulu bera fast auðkenni, fasteignanúmer, sem Fasteignamat ríkisins úthlutar við forskráningu. Númerið er hlaupandi raðtala og felur ekki í sér aðrar upplýsingar. Undir fasteignanúmer fellur:
1. Landnúmer, sem er auðkenni landskika.
2. Heitinúmer, sem er auðkenni fasteignaheita.
3. Fastanúmer, sem er auðkenni eignarhluta í mannvirki eða mannvirkja í heild sinni, ásamt lóðarréttindum.
Auk fasteignanúmers ber hver fasteign heiti samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar eða samkvæmt lögum um bæjanöfn o.fl.
Ráðherra er heimilt að setja nánari reglur um heiti fasteigna, annarra en þeirra sem falla undir lög um bæjanöfn o.fl.
2. gr.
3. gr.
Nýtt matsverð skal þegar skrá í Landskrá fasteigna og gildir það með þeim almennu breytingum sem á því geta orðið eða þar til því er hrundið með nýju mati.
4. gr.

5. gr.